Paroles Jólakötturinn de Bjork

Bjork
  • 0.0Vous n'aimez pas les paroles de Bjorkloading
  • Note 0.0/5 basée sur 0 avis.
  • Artiste: Bjork2658
  • Chanson: Jólakötturinn
  • Langue:

Les chansons similaires

Frank Mills de Emiliana Torrini

( Hàrið ) First þegar hitti'ég Frank Mills Þá var fimmtándi sepember. Ég hitti hann einmitt hér. Hann sagði mér hvar hann býr. Svo gleymdi ég því. Síðan hef ég ekki séð hann aftur...

Báturinn Minn Lekur de Maus

mig vantar bát til að ferja mig á næsta stað, til að losna við hvernig skerið sekkur með árunum, og hvernig vonir fjara út með hárunum. mig vantar bát, meira en nokkru sinni fyrr... og...

Luftgítar de Sugarcubes (The)

Björk : Luftgítar! Go go! Johnny Triumph : Ég dansa ekki Stelpur dansa Ég dansa ekki Ég stíg inn í skuggan Ég dansa ekki Ég fer undir sviðið Ég dansa ekki Ég geri Luftgítar Ósýnilegur...

Luftgítar de The Sugarcubes

Björk : Luftgítar! Go go! Johnny Triumph : Ég dansa ekki Stelpur dansa Ég dansa ekki Ég stíg inn í skuggan Ég dansa ekki Ég fer undir sviðið Ég dansa ekki Ég geri Luftgítar Ósýnilegur...

Fusi Hreindyr de Bjork

Fyrir ofan Vatnajokul Ekki langt fra odadahraun Par a fusi hreindyr heima Par ferdast hann a laun Hann fusi hreindyr syngur Vid fossanid og kvak Hann leikur ser hja laeknum Lengst inn vid fjallabak Hullum...

Textes et Paroles de Jólakötturinn




(Icelandic christmas-compilation)

Þið kannizt við jólaköttinn
- sá köttur var griðarstór
Fólk vissi'ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór

Hann glennti upp glyrnurnar sinar
glóandi báðar tvær
Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær

Kamparnir beittir sem broddar
upp úr bakinu kryppna há
og klærnar à loðinni löpp
var ljótt að sjá

Því var það, að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítin sokk

Þvi kötturinn mátti' ekki koma
og krækja í börnin smá
Þau urðu að fásína flík
þeim fullorðnu hjá

Og er kveikt var á jólakvöldið
og kötturin gægðist inn
stóðu börnin bísperrt og rjóð
með böggulinn sinn

Hann veifaði stélinu sterka
hann stökk og hann klóraði' og blés
og var ýmist uppi í dal
eða úti' um nes

Hann sveimaði, soltinn og grimmur
í sárköldum jólasnæ
og vakti í hjörtunum hroll
á hverjum bæ

Ef mjálmað var aumlega úti
var ólukkan samstundis vís
Allir vissu' að hann veiddi menn
en vildi ekki mýs

Hann lagðist á fátæka fólkið
sem fékk enga nýja spjör
fyrir jólin - og baslaði og bjó
við bágust kjör

Frá því tók hann ætið í einu
allan þess jólamat
og át það svo oftast nær sjálft
ef hann gat

Því var það, að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítin sokk

Sum höfðe fengið svuntu
og sum höfðu fengið skó
eða eitthvað, sem þótti þarft
en þad var nóg

Þvi kisa máti' engan eta
sem einhverja flíkina hlaut
Hún hvæsti þá heldur ljót
og hljóp á braut

Hvort enn er hún til, veit ég ekki
en aum yrði hennar för
ef allir eignuðust næst
einhverja spjör

Þið hafið nú kannske í huga
að hjálpa, ef þörf verður á
máske enn finnist einhver börn
sem ekkert fá

Máske, að leitin að þeim sem líða
af ljósskorti heims um ból
gefi ykkur góðan dag
og gleðileg jól

N'hésitez pas à faire une recherche de paroles d'une chanson dont vous ne connaissez qu'un morceau de texte avec notre moteur de paroles et chansons